Ótrúlegt sigurmark Kane í uppbótartíma

Harry Kane reynir skot að marki Juventus í dag.
Harry Kane reynir skot að marki Juventus í dag. AFP

Tottenham hafði betur gegn Juventus þegar liðin mættust í skemmtilegum leik á alþjóðlega mótinu Champ­i­ons Cup í Singapúr í dag. Lokatölur urðu 3:2 og skoraði Harry Kane ótrúlegt sigurmark í uppbótartíma. 

Érik Lamela skoraði eina mark fyrri hálfleiksins er hann kom Tottenham yfir eftir hálftíma leik. Gonzalo Higuaín kom inn á sem varamaður hjá Juventus í hálfleik og hann jafnaði metin á 56. mínútu. 

Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir fjórum mínútum síðar en fór svo af velli á 63. mínútu. Tottenham-menn voru fljótir að nýta sér það, því Lucas Moura jafnaði á 65. mínútu.

Það benti allt til þess að liðin myndu skilja jöfn, en Harry Kane skoraði þriðja mark Tottenham í blálokin með stórkostlegu skoti nálægt miðlínunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert