Coutinho á leið til Þýskalands

Coutinho leikur með Bayern á tímabilinu.
Coutinho leikur með Bayern á tímabilinu. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Philippe Coutinho hefur samþykkt að ganga í raðir Þýskalandsmeistara Bayern München. Er um lánssamning sem gildir í eitt tímabil að ræða, en Bayern getur keypt leikmanninn eftir leiktíðina. 

Coutinho var ekki með Barcelona í 0:1-tapinu gegn Athletic Bilbao í gær. Bayern hefur ekki staðfest komu Coutinho, en Hasan Salihamidzic, íþróttastjóri Bayern, staðfesti við Þýska fjölmiðla í gær að félagsskiptin gengu í gegn fljótlega. 

Coutinho mætir til Þýskalands á morgun eða á mánudaginn og mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning. Mickael Cuisance, leikmaður Borussia Mönchengladbach, mun að öllum líkindum einnig ganga í raðir Bayern um helgina. 

„Ég og Karl-Heimz Rummenigge vorum í Barcelona í vikunni og við erum með samkomulag við leikmanninn og umboðsmanninn. Ég vil þakka Barcelona fyrir góð samskipti," sagði Salihamidzic eftir 2:2-jafntefli Bayern og Hertha Berlín í gærkvöldi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert