Orðaður við Juventus

Luis Suárez hefur leikið með Barcelona frá árinu 2014 en …
Luis Suárez hefur leikið með Barcelona frá árinu 2014 en hér fagnar hann með nýjasta leikmanni liðsins, Antoine Griezmann. AFP

Luis Suárez, framherji spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, er í dag orðaður við ítalska stórliðið Juventus í spænskum fjölmiðlum. Barcelona og franska stórliðið PSG reyna nú að semja um kaupverð spænska liðsins á Neymar, sóknarmanni PSG.

Spænskir fjölmiðlar eru bjartsýnir á að kaupin muni ganga í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokast 2. september. Fari svo að Neymar gangi til liðs við Barcelona gæti Suárez farið til Juventus.

Suárez er orðinn 32 ára gamall en hann kom til Barcelona frá Liverpool sumarið 2014. Barcelon hefur eytt háum fjárhæðum í sumar í þá Antoine Griezmann og Frankie de Jong og gæti því þurft að selja leikmenn til þess að brjóta ekki fjárlagareglur FIFA, FFP.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert