Sarri missir af fyrstu tveimur leikjunum

Maurizio Sarri
Maurizio Sarri AFP

Maurizio Sarri, knattspyrnustjóri Juventus, verður ekki á hliðarlínunni í fyrstu tveimur umferðum ítölsku A-deildarinnar vegna veikinda. Sarri greindist með lungnabólgu á dögunum. 

Juventus mætir Parma í 1. umferðinni um helgina og Napoli í 2. umferðinni helgina á eftir. Sarri er hressari nú en þegar hann fyrst greindist með sjúkdóminn og er á batavegi. 

Sarri heimsótti æfingasvæði Juvetnus í dag, þrátt fyrir veikindin, en hann stýrði ekki æfingu liðsins. Sarri tók við stjórn Juventus í sumar, eftir að hann yfirgaf enska félagið Chelsea eftir eitt tímabil. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert