Sigur í fyrsta leik Arons hjá Heimi í Katar

Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson á góðri stundu með …
Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson á góðri stundu með landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Al Arabi, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, byrjar nýtt tímabil í Katar vel og vann 3:1-sigur á Al Ahli í fyrstu umferð deildarinnar þar í landi í dag.

Staðan í hálfleik var 1:1, en Al Arabi skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og tryggði sér sigurinn. Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson spilaði sinn fyrsta leik með Al Arabi og lék allan leikinn á miðjunni.

Al Arabi hafnaði í sjötta sæti deildarinnar í fyrra, en Heimir tók við um áramót. Aron Einar kom svo til félagsins eftir að hafa fallið með Cardiff úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert