Gerðu hróp að sigurmarki Neymars

Neymar fagnar marki sínu í gærkvöldi en ekki allir gerðu …
Neymar fagnar marki sínu í gærkvöldi en ekki allir gerðu það með honum. AFP

Brasilíumaðurinn Neymar sneri aftur á knattspyrnuvöllinn með PSG í gærkvöldi en stuðningsmenn franska liðsins létu stjörnuna heyra það allan leikinn í París, meira að segja þegar hann skoraði sigurmarkið.

Neymar missti af fyrstu fimm leikjum PSG vegna meiðsla en hann reyndi ólmur að komast frá félaginu og aftur til Barcelona í allt sumar en án árangurs. Hann var hins vegar mættur í byrjunarlið PSG sem fékk Strasbourg í heimsókn og létu stuðningsmenn liðsins hann heyra það frá fyrstu mínútu.

Púað var á hverja snertingu kappans og þegar hann skoraði dramatískt sigurmark í uppbótartíma úr hjólhestaspyrnu mátti heyra blöndu af fagnaðarlátum og bauli.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem allir púa á mig,“ sagði Neymar við fjölmiðla eftir leik. „Ég hef ekkert á móti félaginu eða stuðningsmönnunum en það er ekkert leyndarmál að ég vildi fara. Héðan í frá verða allir leikir sem ég spila útileikir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert