Hólmar í byrjunarliðið eftir krossbandsslit

Hólmar Örn Eyjólfsson er kominn af stað aftur eftir meiðsli.
Hólmar Örn Eyjólfsson er kominn af stað aftur eftir meiðsli. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hólmar Örn Eyjólfsson var í dag í fyrsta skipti í byrjunarliði búlgarska liðsins Levski Sofia síðan hann sleit krossband í hné í nóvember á síðasta ári.

Hólmar lék allan leikinn í sannfærandi 3:0-heimasigri á Cerno More. Íslenski varnarmaðurinn hafði áður komið inn á sem varamaður í þremur leikjum og spilað samanlagt tólf mínútur. Það var því stórt skref að spila heilan leik í dag.

Levski Sofia er í öðru sæti búlgörsku deildarinnar með 20 stig, einu stigi minna en Ludogorets. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert