Ronaldo skaut Juventus á toppinn

Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Juventus.
Cristiano Ronaldo skoraði sigurmark Juventus. AFP

Juventus er komið upp í toppsæti ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir 2:1-sigur á Hellas Verona í 4. umferðinni í dag. 

Hellas Verona komst yfir með marki Miguels Veloso á 20. mínútu en Aaron Ramsey, fyrrverandi leikmaður Arsenal, jafnaði á 31. mínútu og staðan í hálfleik var 1:1. 

Cristiano Ronaldo kom Juventus í 2:1 með marki úr vítaspyrnu á 49. mínútu og reyndist það sigurmarkið. Juventus er með 10 stig á toppnum en Inter Mílanó getur tekið toppsætið með sigri á grönnunum í AC Mílan síðar í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert