Sara Björk skoraði tvö í Þýskalandi

Sara Björk Gunnarsdottir skoraði tvö mörk í dag.
Sara Björk Gunnarsdottir skoraði tvö mörk í dag. AFP

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir topplið Wolfsburg í þýsku efstu deildinni í knattspyrnu í 3:0-sigri á Potsdam í dag.

Sara var sem fyrr í byrjunarliðinu og lék allan leikinn en hún kom gestunum yfir strax á þriðju mínútu og rak svo smiðshöggið á sigurinn með sínu öðru marki og þriðja marki liðsins á lokamínútu leiksins.

Wolfsburg er ríkjandi Þýskalandsmeistari og hefur titilvörnina vel. Liðið er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert