Mario Balotelli, framherji ítalska knattspyrnufélagsins Brescia, vonast til þess að þreyta frumraun sína með félaginu á morgun þegar liðið fær Juventus í heimsókn í ítölsku A-deildinni. Balotelli hefur ekkert spilað fyrir Brescia síðan hann gekk til liðs við félagið frá Marseille í sumar en framherjinn hefur tekið úr leikbann í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.
Balotelli mun að öllum líkindum byrja leikinn gegn Juventus á morgun en Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður heims, er leikmaður Juventus. „Er ég spenntur fyrir því að spila gegn Cristiano Ronaldo?“ sagði Balotelli í samtali við blaðamenn. „Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama.“
„Hann er sigurvegari og einn af þeim bestu í heimi ásamt Lionel Messi. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til þess að mæta honum á vellinum en það gerir mig ekki spenntan. Ég mun reyna að skora eins og í öllum leikjum sem ég spila í,“ sagði Balotelli.