Ronaldo verður fjarri góðu gamni

Cristiano Ronaldo í leik með Juventus.
Cristiano Ronaldo í leik með Juventus. AFP

Cristiano Ronaldo verður fjarri góðu gamni með Ítalíumeisturum Juventus annað kvöld þegar þeir sækja Brescia heim í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.

Ronaldo glímir við smávægileg meiðsli í læri og var sú ákvörðun tekin að hvíla Portúgalann snjalla annað kvöld.

Með sigri fer Juventus á topp deildarinnar, en liðið er tveimur stigum á eftir toppliði Inter eftir fjórar umferðir.

Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli leikur fyrsta leik sinn með Brescia annað kvöld, en þessi skrautlegi leikmaður kom til liðsins frá franska liðinu Marseille í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert