Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur hennar í þýska meistaraliðinu Wolfsburg áttu ekki í vandræðum með að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í dag.
Wolfsburg hafði betur gegn liði Mitrovica 5:0 í síðari viðureign liðanna í Þýskalandi í dag og vann Wolfsburg einvígið samanlagt 15:0.
Sara Björk lék allan tímann fyrir Wolfsburg og skoraði fimmta marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins.