Bjarni hetjan í markaleik

Bjarni Mark Antonsson skoraði tvö mörk í dag.
Bjarni Mark Antonsson skoraði tvö mörk í dag. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Bjarni Mark Antonsson var hetja Brage er liðið hafði betur gegn Frej í sænsku B-deildinni í fótbolta í kvöld, 3:2. 

Bjarni skoraði fyrsta markið á elleftu mínútu og var staðan í hálfleik 1:0. Frej skoraði tvö mörk snemma í seinni hálfleik og komst í 2:1, áður en Brage jafnaði í 2:2. Bjarni var aftur á ferðinni á 85. mínútu með sigurmarkið. 

Miðjumaðurinn, sem kom til Brage frá KA, er búinn að skora þrjú mörk á leiktíðinni. Liðið er í þriðja sæti með 47 stig, einu stigi á eftir toppliði Mjällby. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert