Modric tæpur fyrir stórleikinn

Luka Modric fór meiddur af velli gegn Wales í Cardiff …
Luka Modric fór meiddur af velli gegn Wales í Cardiff í kvöld. AFP

Luka Modric, fyrirliði króatíska landsliðsins í knattspyrnu og miðjumaður Real Madrid, haltraði af velli í 1:1-jafntefli Króata gegn Wales í Cardiff í kvöld. Modric fór í tæklingu við Harry Wilson seint í leiknum með þeim afleiðingum að þeir lágu báðir óvígir eftir.

Modric þurfti stuðning þegar hann haltraði af velli en talið er næsta víst að hann missi af leik Real Madrid gegn Mallorca á útivelli um næstu helgi í spænsku 1. deildinni. Þá óttast forráðamenn Real Madrid að Modric missi af leik Barcelona og Real Madrid á Nývangi 26. október næstkomandi.

Real Madrid er á toppi spænsku 1. deildarinnar með 18 stig eftir fyrstu átta umferðirnar en liðið hefur unnið fimm leiki til þessa og gert þrjú jafntefli. Real Madrid er með tveggja stiga forskot á Barcelona og leikurinn 26. október afar mikilvægur fyrir bæði lið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert