Bayern komið langleiðina áfram

Lina Magull skoraði tvö af mörkum Bayern München.
Lina Magull skoraði tvö af mörkum Bayern München. Ljósmynd/þýska knattspyrnusambandið

Þýska liðið Bayern München er svo gott sem komið áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu kvenna eftir 5:0 útisigur gegn BIIK-Kazygurt frá Kasakstan í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitunum í morgun.

Þýska landsliðskonan Lina Magull skoraði tvö af mörkum Bayern München og þær Jovana Damnjanovic, Emily Gielnik og Nicole Rosner skoruðu sitt markið hver.

Breiðablik verður í eldlínunni í 16-liða úrslitunum á Kópavogsvellinum í kvöld en þá mætir liðið stórliði Paris SG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert