Búið að fresta „El Clásico“

Lionel Messi skrefi á undan Casemiro í viðureign Barcelona og …
Lionel Messi skrefi á undan Casemiro í viðureign Barcelona og Real Madrid. AFP

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta viðureign Barcelona og Real Madrid sem áttu að mætast á Camp Nou laugardaginn 26. október.

Ástæðan er sú að róstursamt hefur verið  í Barcelona undanfarna daga þar sem tugþúsund­ir hafa mót­mælt fang­els­is­dóm­um leiðtoga aðskilnaðarsinna.

Félögin samþykktu bæði að fresta leiknum og greinir spænska knattspyrnusambandið frá því á vef sínum að þau hafi frest fram á mánudagsmorgun til að ákveða nýjan leikdag. Takist þeim ekki að ná samkomulagi um leiktíma mun mótanefnd spænska knattspyrnusambandsins finna nýja dagsetningu og hefur desember verið nefndur í því sambandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert