Guðlaugur Victor skoraði sigurmarkið

Guðlaugur Victor Pálsson í treyju Darmstadt.
Guðlaugur Victor Pálsson í treyju Darmstadt. Ljósmynd/Darmstadt

Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson skoraði sigurmark Darmstadt gegn St. Pauli í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag en leiknum lauk 1:0.

Guðlaugur var í byrjunarliði gestanna og spilaði á miðjunni fram að 88. mínútu þegar hann var tekinn af velli en skömmu áður, á 80. mínútu, skoraði hann sigurmark liðsins með skalla eftir hornspyrnu.

Þetta var annar sigur Darmstadt í deildinni eftir tíu umferðir en liðið hefur nú 11 stig og er í 12. sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert