Sveinn Aron í liði vikunnar eftir ótrúlega innkomu

Sveinn Aron Guðjohnsen.
Sveinn Aron Guðjohnsen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sveinn Aron Guðjohnsen er í liði vikunnar í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu eftir magnaða innkomu hans í liði Spezia gegn Pescara í leik liðanna á laugardaginn.

Sveinn Aron kom inn á sem varamaður á 61. mínútu þegar Spezia var að tapa 1:0 en átta mínútum eftir að hann kom inn á lagði hann upp jöfnunarmark. Þremur mínútum síðar skoraði hann svo sjálfur sigurmarkið, 2:1. Þessi frammistaða skilaði honum sæti í liði vikunnar hjá ítalska fjölmiðlinum Gazetta della Spezia.

Sveinn hef­ur átt erfitt upp­drátt­ar hjá Spezia síðan hann gekk í raðir fé­lags­ins frá Breiðabliki fyr­ir síðustu leiktíð og er markið það fyrsta sem hann skor­ar fyr­ir liðið. Sveinn var að leika sinn fyrsta leik á tíma­bil­inu, en hann hef­ur þurft að verma vara­manna­bekk­inn á tíma­bil­inu til þessa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert