Tottenham vill kaupa Everton

Everton lék vel með brasilíska landsliðinu í sumar.
Everton lék vel með brasilíska landsliðinu í sumar. AFP

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur mikinn áhuga á að kaupa brasilíska sóknarmanninn Everton frá Gremio. Everton spilaði vel með brasilíska landsliðinu í Ameríkubikarnum í sumar. 

Arsenal reyndi að kaupa Everton í sumar, en að lokum ákvað hann að vera áfram í heimalandinu. Leikmaðurinn skoraði þrjú mörk í Ameríkubikarnum á heimavelli í sumar og vann gullskóinn. 

Tottenham er að leita að sóknarmanni, en félagið reyndi að kaupa Paulo Dybala frá Juventus í sumar. Að sögn Sky mun Tottenham leggja fram tilboð í Everton í janúar. Enska félagið fylgist einnig með Gabriel Barbosa, leikmanni Flamengo. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert