Veit ekki hvort Meistaradeildin saknaði mín

Alex Oxlade-Chamberlain fagnar í kvöld.
Alex Oxlade-Chamberlain fagnar í kvöld. AFP

„Ég veit ekki hvort Meistaradeildin saknaði mín, en ég saknaði hennar,“ sagði kampakátur Alex Oxlade-Chamberlain við BT-sjónvarpsstöðina eftir 4:1-sigur Liverpool á Genk í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. 

Oxlade-Chamberlain spilaði sinn fyrsta leik í keppninni í 18 mánuði í dag og fagnaði því með því að skora tvö fyrstu mörk Liverpool í kvöld. Hann fylgist með liðsfélögum sínum vinna keppnina á síðustu leiktíð. 

„Það var gott að spila í Evrópukeppni aftur og það er alltaf sérstök tilfinning. Það var mjög gaman að fylgjast með strákunum á síðustu leiktíð og vera á bekknum undir lokin og sjá liðið vinna bikarinn.

Það er ánægjulegt að vera í byrjunarliðinu í kvöld og aukabónus að skora tvö mörk. Við verðum hins vegar að spila betur ef við ætlum okkur langt í keppninni. Við eigum mikið inni, þrátt fyrir að við séum að ná í úrslit, sem er jákvætt,“ sagði miðjumaðurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert