Búið að reka þrjá á einni viku

Sandro Schwarz var rekinn frá Mainz í dag.
Sandro Schwarz var rekinn frá Mainz í dag. AFP

Á einni viku hafa þrír þjálfarar verið látnir taka poka sinn í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu.

Í dag fékk Sandro Schwarz þjálfari Mainz reisupassann en hann var rekinn frá störfum eftir 3:2 tap Mainz gegn nýliðum Union Berlín í gær en á dögunum steinlá Mainz fyrir Leipzig 8:0.

Þar með hafa þrír þjálfarar verið reknir á einni viku. Niko Kovac var látinn poka sinn hjá Bayern München síðastliðinn sunnudag og í gær var Achim Beierlorzer rekinn frá Köln.

Mainz er í þriðja neðsta sæti deildarinnar en það hefur tapað átta af 11 leikjum sínum og er það versta byrjun í sögu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert