Vilja endurnýja kynnin við Guardiola

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP

Þýska meistaraliðið Bayern München vill endurnýja kynnin við Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City.

Þýska blaðið Bild greinir frá því að Bayern vilji fá Guardiola til að taka við þjálfun liðsins næsta sumar en félagið leitar að framtíðarþjálfara eftir að Króatanum Niko Kovac var sagt upp störfum á dögunum.

Guardiola var við stjórnvölinn hjá Bayern München frá 2013 til '16 og undir hans stjórn varð liðið í þrígang þýskur meistari, tvisvar sinnum bikarmeistari og vann heimsmeistaratitil félagsliða. Guardiola er samningsbundinn Manchester City út næsta tímabil en hann er á sínu fjórða ári hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert