Sagði af sér á fréttamannafundi

Marcello Lippi.
Marcello Lippi. AFP

Ítalinn Marcelo Lippi, landsliðsþjálfari Kína í knattspyrnu, var fljótur að bregðast við eftir 2:1 tap Kínverja gegn Sýrlendingum í undankeppni HM í Dubai í gærkvöld.

Strax eftir leikinn sagði Lippi upp starfi sínu en hann tók á nýjan leik við þjálfun kínverska landsliðsins eftir að hafa hætt í janúar. Lippi tilkynnti um ákvörðun sína á fréttamannafundi eftir leikinn.

„Okkur tókst að vinna veikari andstæðinga eins og Maldíveyjar og Guam en þegar við mættum sterkari liðum eins og Filippseyjum og Sýrlandi gátum við ekki spilað okkar eigin fótbolta. Ég fékk vel borgað og ég tek fulla ábyrgð. Ég tilkynni nú afsögn mína og mun ekki verða lengur þjálfari Kína,“ sagði Lippi.

Eftir fjórar umferðir í riðlinum er Kína með 7 stig eins og Filippseyjar en Sýrland trónir á toppnum með 12 stig. Kínverjum hefur aðeins einu sinni tekist að komast í lokakeppni HM en það var árið 2002 þar sem þeir töpuðu öllum leikjum sínum án þess að skora mark.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert