„Ég mun bæta þetta met“

Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu gegn Lúxemborg í gær.
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu gegn Lúxemborg í gær. AFP

Cristiano Ronaldo er staðráðinn í bæta enn einu metinu í safn sitt en hann skoraði síðara mark Portúgala í 2:0 sigri gegn Lúxemborg í undankeppni EM í knattspyrnu í gær.

Með sigrinum tryggðu Evrópumeistararnir farseðilinn á Evrópumótið. Ronaldo skoraði sitt 14. landsliðsmark á árinu og hefur skorað 99 mörk fyrir þjóð sína. Hann er tíu mörkum á eftir Írananum Ali Daei sem er sá leikmaður sem hefur skorað flest landsliðsmörk.

„Öll met verður að bæta og ég mun bæta þetta met,“ sagði Ronaldo eftir sigurinn gegn Lúxemborg en hann verður að bíða með það fram í mars að skora sitt 100. mark en í mars er næsta landsleikjahlé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert