Benzema allt í öllu

Karim Benzema skoraði eitt og lagði upp annað fyrir Real …
Karim Benzema skoraði eitt og lagði upp annað fyrir Real Madrid. AFP

Karim Benzema fór mikinn fyrir Real Madrid þegar liðið vann 2:0-sigur á heimavelli gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Það var Raphaël Varane sem kom Real Madrid yfir á 37. mínútu eftir sendingu Benzema og staðan því 1:0 í hálfleik.

Benzema skoraði svo annað mark leiksins á 79. mínútu og gulltryggði Real Madrid öll þrjú stigin úr leiknum. Real Madrid fer með sigrinum í efsta sæti deildarinnar í 34 stig og hefur nú þriggja stiga forskot á Barcelona sem mætir Mallorca á heimavelli síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert