Í banastuði í Úkraínu

Árni Vilhjálmsson byrjar afar vel með Kolos Kovalivka.
Árni Vilhjálmsson byrjar afar vel með Kolos Kovalivka.

Kolos Kovalivka vann sannfærandi 4:0-heimasigur á SK Dnipro-1 í úkraínsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Árni Vilhjálmsson fór á kostum í liði Kovalivka. 

Árni skoraði fyrsta markið úr víti á 14. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0. Árni var aftur á ferðinni á 52. mínútu og breytti stöðunni í 2:0. Kovalivka bætti við tveimur mörkum og vann sannfærandi sigur. 

Íslenski framherjinn hefur farið vel af stað með Kovalivka og skorað þrjú mörk í þremur leikjum síðan hann gekk í raðir félagsins frá Nieciecza í Póllandi.

Hann kann vel við sig í Úkraínu því hann hefur skorað tíu mörk í 15 leikjum í úkraínsku deildinni með Kovalivka og Chornomorets. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert