Gattuso kominn til Napoli

Gennaro Gattuso.
Gennaro Gattuso. AFP

Gennaro Gattuso, fyrrverandi leikmaður AC Milan, er mættur til Napoli til að stýra liðinu á æfingu núna um hádegisbilið, samkvæmt SkySports, en Carlo Ancelotti var rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri félagsins í gærkvöld.

SkySports segir að Gattuso hafi verið boðinn sex mánaða samningur með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Gattuso, sem er 41 árs gamall, lék undir stjórn Ancelotti hjá AC Milan á sínum tíma og stýrði liðinu sjálfur frá nóvember 2017 til vorsins 2019. Hann hefur jafnframt stýrt liðum Pisa, OFI Krít og Palermo síðan hann lagði skóna á hilluna sjálfur árið 2013 en hann lauk löngum ferli sem spilandi þjálfari Sion í Sviss.

Ancelotti hefur hins vegar verið orðaður við bæði Everton og Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert