Glódís Perla Viggósdóttir landsliðskona í knattspyrnu er í ellefu manna úrvalsliði sænsku úrvalsdeildarinnar sem stuðningsmenn liðanna hafa valið.
Glódís varð sænskur meistari með Rosengård í haust en hún lék alla 22 leikina í vörn liðsins og hverja einustu mínútu á tímabilinu, annað tímabilið í röð. Glódís hefur ekki misst úr eina mínútu með liðinu í deildinni frá því hún kom til félagsins frá Eskilstuna fyrir hálfu þriðja ári.
Rosengård á sex leikmenn í úrvalsliðinu.