Á skotskónum í Íslendingaslag

Jón Dagur og félagar fagna innilega.
Jón Dagur og félagar fagna innilega. Ljósmynd/AGF

AGF vann afar sterkan 3:1-útisigur á Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Jón Dagur Þorsteinsson leikur með AGF og Mikael Anderson er leikmaður Midtjylland. 

Staðan í hálfleik var 1:0, Midtjylland í vil, en AGF lék afar vel í seinni hálfleik og skoraði þrjú mörk á fyrstu tíu mínútum hans.

Annað markið gerði Jón Dagur, en hann hefur skorað fimm mörk í dönsku deildinni á leiktíðinni. Mikael lék allan leikinn fyrir Midtjylland og Jón Dagur fyrstu 70 mínúturnar með AGF. 

Þrátt fyrir tapið er Midtjylland með 50 stig og sjö stiga forskot á FC Kaupmannahöfn. AGF er í þriðja sæti með 36 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert