Borussia Mönchengladbach mistókst að endurheimta toppsætið í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið tapaði 2:1 á útivelli gegn Wolfsburg.
Breel Embolo jafnaði metin fyrir Mönchengladbach tveimur mínútum eftir að Xaver Schlager kom heimamönnum í Wolfsburg yfir snemma leiks. Það var svo í blálokin í uppbótartíma þegar Maximilian Arnold tryggði heimamönnum dramatískan sigur og kom í veg fyrir að gestirnir endurheimtu toppsætið sem þeir misstu til RB Leipzig í gær.
Leipzig vann 3:0-útisigur á Düsseldorf í gærkvöldi og er því á toppnum með 33 stig, tveimur stigum fyrir ofan Mönchengladbach. Dortmund er í þriðja sætinu með 29 stig og þýsku meistararnir í Bayern München í því fjórða með 27 stig að loknum 15 umferðum.