Selfyssingur verður liðsfélagi Hólmars

Guðmundur Þórarinsson er á leið til Búlgaríu.
Guðmundur Þórarinsson er á leið til Búlgaríu. AFP

Norrköping Tidningar, staðarblaðið í Norrköping í Svíþjóð, greinir frá því í dag að Guðmundur Þórarinsson sé að ganga í raðir Levski Sofia í Búlgaríu. 

Samningur Guðmundar við Norrköping rennur út um áramótin, en hann hefur verið í herbúðum sænska félagsins síðustu þrjú ár. Guðmundur hefur einnig leikið með Rosenborg, Nordsjælland og Sarpsborg, síðan hann varð atvinnumaður árið 2013. 

Átti hann mjög gott tímabil með Norrköping, sem vakti áhuga félaga í stærri deildum. Hjá Levski hittir hann fyrir Hólmar Örn Eyjólfsson, en þeir léku saman með Rosenborg árið 2016 og voru þeir einnig liðsfélagar í 21 árs landsliði Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert