Skagamaðurinn á Kýpur út leiktíðina

Björn Bergmann Sigurðarson leikur með Apoel út leiktíðina.
Björn Bergmann Sigurðarson leikur með Apoel út leiktíðina. Ljósmynd/Apoel

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er genginn í raðir kýpverska knattspyrnufélagsins APOEL á lánssamningi frá Rostov í Rússlandi. Gildir samningurinn út leiktíðina. 

Framherjinn hef­ur verið at­vinnumaður frá ár­inu 2009 þegar hann gekk til liðs við norska úr­vals­deild­arliðið Lillestrøm frá ÍA.

Þá hef­ur Björn einnig leikið með Wol­ves, Molde, FC Kaup­manna­höfn og Rostov á sín­um at­vinnu­manns­ferli en hann á að baki 17 lands­leiki fyr­ir A-landsliðið þar sem hann hef­ur skorað eitt mark.

APOEL er í fjórða sæti kýp­versku 1. deild­ar­inn­ar með 28 stig eft­ir fyrstu fimmtán leiki sína en fé­lagið er og sig­ur­sæl­asta lið Kýp­ur með 28 deild­ar­titla, en það hefur orðið meistari undanfarin sjö ár. Þá er liðið komið í 32 liða úr­slit Evr­ópu­deild­ar­inn­ar þar sem það mæt­ir Basel frá Sviss í fe­brú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert