Óvænt tap hjá Ronaldo og félögum

Leikmenn Napoli fagna en Ronaldo gengur súr af velli.
Leikmenn Napoli fagna en Ronaldo gengur súr af velli. AFP

Napoli vann sinn fyrsta sigur í ítölsku A-deildinni síðan 22. desember er liðið vann óvæntan 2:1-sigur á Juventus á heimavelli í kvöld. 

Piotr Zielinski kom Napoli yfir á 63. mínútu, áður en Lorenzo Insigne tvöfaldaði forskotið á 86. mínútu. Cristiano Ronaldo lagaði stöðuna fyrir Juventus á lokamínútunni og þar við sat. 

Þrátt fyrir tapið er Juventus með þriggja stiga forskot á Inter, en Napoli er í 12. sæti með 27 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert