Leikmaður Chelsea verður seldur til Ítalíu

Mario Pasalic í leik með Atalanta.
Mario Pasalic í leik með Atalanta. AFP

Króatíski knattspyrnumaðurinn Mario Pasalic verður seldur frá Chelsea til Atalanta í sumar fyrir 15 milljónir evra. Pasalic kom til Chelsea frá Hajduk Split árið 2014 en hefur ekki leikið með aðalliði enska félagsins. 

Pasalic hefur verið að láni hjá Elche, Mónakó, AC Mílan og Spartak Moskvu á síðustu árum. Hann gekk svo í raðir Atalanta á lánssamningi árið 2018 og svo aftur fyrir þessa leiktíð.

Króatinn hefur leikið vel með Atalanta og skoraði hann m.a. sigurmarkið gegn Roma á laugardag. Hann hefur skorað 10 mörk í 55 leikjum með Atalanta og leikið 12 A-landsleiki fyrir Króatíu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert