Lið Birkis gerir hlé á starfsemi vegna veirunnar

Birkir Bjarnason sækir að Paulo Dybala í dag í leik …
Birkir Bjarnason sækir að Paulo Dybala í dag í leik Brescia og Juventus. AFP

Brescia, lið Birkis Bjarnasonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, hefur gert hlé á allri starfsemi unglingaliða sinna til 1. mars hið minnsta vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á norðurhluta Ítalíu.

Brescia er í héraðinu Lombardy en þar og í nágrannahéraðinu Veneto hefur veirunnar orðið vart. Sex manns hafa nú látið lífið af völdum hennar á svæðinu og á þriðja hundrað hafa veikst.

Fjölmörgum leikjum í ítölsku knattspyrnunni var frestað um helgina af þessum sökum, m.a. bæði hjá Emil Hallfreðssyni og Padova og hjá Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur og AC Milan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert