Klár í slaginn gegn Real

Raheem Sterling verður klár í slaginn gegn Real Madríd.
Raheem Sterling verður klár í slaginn gegn Real Madríd. AFP

Knattspyrnumaðurinn Raheem Sterling er klár í slaginn er Manchester City og Real Madríd mætast í Meistaradeild Evrópu í fótbolta annað kvöld. Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, staðfesti tíðindin á blaðamannafundi í dag. 

Sterling meiddist í 0:2-tapinu gegn Tottenham í upphafi mánaðar og hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna þessa. „Batinn hans hefur verið ótrúlegur,“ sagði Guardiola m.a. á fundinum. 

Aymeric Laporte ætti einnig að vera klár í slaginn hjá City, þrátt fyrir að hafa farið af velli eftir tæpan klukkutíma í leiknum gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. 

Eden Hazard verður ekki með Real það sem eftir lifir leiktíðar þar sem hann ökklabrotnaði um helgina. Þá verður Marco Asensio ekki heldur með á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert