Markahrókurinn frá keppni í mánuð

Robert Lewandowski skorar þriðja mark Bayern í gær.
Robert Lewandowski skorar þriðja mark Bayern í gær. AFP

Pólski framherjinn Robert Lewandowski, leikmaður Bayern München, verður ekkert með liðinu næsta mánuðinn vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 3:0-sigrinum á Chelsea í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. 

Lewandowski átti stórleik á Stamford Bridge og skoraði eitt mark og lagði upp tvö til viðbótar. Við komuna heim til Þýskalands kom í ljós brot í beini í sköflungnum. 

„Hann má varla hreyfa sig fyrstu tíu dagana, en svo hefst endurhæfing og hann verður frá í um fjórar vikur,“ segir í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. 

Framherjinn mun missa í það minnsta af fjórum deildarleikjum og svo síðari leik liðsins við Chelsea á heimavelli 18. mars. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert