Kolbeinn ekki búinn að jafna sig

Kolbeinn Sigþórsson er ekki alveg klár í slaginn.
Kolbeinn Sigþórsson er ekki alveg klár í slaginn. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með AIK gegn Örgryte í sænska bikarnum á morgun. Framherjinn hefur verið að glíma við meiðsli og veikindi á nýju ári. 

Rikard Norling, þjálfari hans hjá AIK, staðfesti tíðindin við Expressen í dag. „Hann er ekki klár þar sem hann er enn ekki byrjaður að æfa á fullu á nýjan leik,“ sagði Norling. 

Kolbeinn er nálægt því að vera klár í slaginn og gæti hann leikið gegn Kalmar í bikarnum mánudaginn 9. mars. Sænska deildin hefst snemma í apríl og er fyrsti leikur Kolbeins og félaga gegn BK Häcken á útivelli 6. apríl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert