Salzburg tekur á móti Eintracht Frankfurt í dag

Daichi Kamada skoraði þrjú mörk fyrir Eintracht Frankfurt í fyrri …
Daichi Kamada skoraði þrjú mörk fyrir Eintracht Frankfurt í fyrri leik liðanna. AFP

Red Bull Salzburg tekur á móti Eintracht Frankfurt í Austurríki í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í dag. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en honum var frestað vegna fellibylsviðvörunar í Salzburg.

Leikurinn hefst klukkan 17 að íslenskum tíma en Eintracht Frankfurt vann stórsigur í fyrri leik liðanna, 4:1, og Salzburg þarf því að skora þrjú mörk og halda marki sínu hreinu til þess að eiga möguleika á því að komast áfram í sextán liða úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert