Union Saint-Gilloise hafði betur gegn Westerlo í belgísku B-deildinni í fótbolta í kvöld, 3:1, en staðan í hálfleik var markalaus.
Aron Sigurðarson lék allan leikinn með Union Saint-Gilloise og skoraði annað mark liðsins á 72. mínútu er hann breytti stöðunni í 2:0. Aron hefur nú skorað í þremur leikjum í röð. Aron og félagar eru í fjórða sæti með 45 stig og í baráttunni um að fara upp í efstu deild.
Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 75 mínúturnar með Lommel í markalausu jafntefli á heimavelli gegn Roeselare. Liðið er í 7. sæti fallriðils deildarinnar og í hörðum slag um að halda sæti sínu í B-deildinni.