Keflvíkingurinn byrjar í Þýskalandi

Samú­el Kári Friðjóns­son lék sinn fyrsta leik í þýsku 1. …
Samú­el Kári Friðjóns­son lék sinn fyrsta leik í þýsku 1. deild­inni um síðustu helgi gegn Bayern München. AFP

Samúel Kári Friðjónsson er í byrjunarliði Paderborn í fyrsta sinn fyrir útileik liðsins gegn Mainz í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu sem hefst klukkan 14:30.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar hann kom inn af varamannbekknum í 3:2-tapi gegn deildarmeisturum og stórliði Bayern München á Allianz-leikvanginum um síðustu helgi.

Samúel gekk til liðs við Paderborn um áramótin frá Noregi þar sem hann lék með Vål­erenga og var í láni hjá Vik­ing í Stavan­ger á síðasta ári.

Alfreð Finnbogason er á meðal varamanna Augsburg sem tekur á móti Mönchengladbach á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert