Willum Þór Willumsson var á skotskónum fyrir BATE þegar liðið heimsótti Slavia Mozyr í hvít-rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leiknum lauk með 2:1-sigri Slavia en Willum Þór skoraði eina mark BATE þegar hann kom liðinu yfir 1:0 á 10. mínútu.
Nikita Melnikov skoraði hins vegar tvívegis fyrir Slavia, á 32. mínútu og 48. mínútu og tryggði liðinu sínu því dýrmætan sigur. Willum, sem lék allan leikinn, skoraði með laglegu skoti innan teigs eftir að hann fékk boltann utarlega á kantinum.
BATE hefur ekki byrjað tímabilið vel í Hvíta-Rússlandi en liðið er án stiga í næst neðsta sæti deildarinnar eftir fyrstu tvo leiki sína. Hvít-rússneska úrvalsdeildin er eina deildin í Evrópu þar sem ennþá er spilaður fótbolti en önnur lönd hafa frestað sínum deildakeppnum um óákveðinn tíma vegna kórónuveirunnar.