Norski táningurinn Erling Braut Haaland er nú sagður efstur á óskalista spænska stórliðsins Real Madríd en drengurinn hefur skorað 12 mörk í fyrstu 11 leikjum sínum með Dortmund eftir að hann færði sig til Þýskalands um áramótin síðustu.
Dortmund keypti Haaland á um 14 milljónir evra frá Salzburg í Austurríki og vill félagið að minnsta kosti 60 milljónir fyrir framherjann í sumar. Hann er aðeins 19 ára gamall en hefur heldur betur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í vetur. Zinedine Zidane, þjálfari Real, vill bæta við sig markaskorara í sumar en spænski miðillinn Marca greinir frá þessu.
Hann er búinn að skora alls 40 mörk á leiktíðinni og hafa tíu þeirra komið í fyrstu sjö leikjum hans í Meistaradeildinni. Enginn hefur verið svona fljótur að komast í tíu mörk í keppninni.