Keflvíkingurinn snarpari en Englendingurinn

Samúel Kári Friðjónsson
Samúel Kári Friðjónsson Ljósmynd/aðsend

Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson hafði betur gegn Englendingnum Anthony Evans er þeir kepptu í ýmsum þrautum fyrir youtubesíðu þýska knattspyrnufélagsins Paderborn.

Kepptu þeir alls í þremur þrautum og hafði Samúel að lokum betur. Samúel gekk í raðir Paderborn frá Viking í Noregi í janúar og spilaði þrjá deildarleiki í efstu deild Þýskalands áður en knattspyrnunni þar í landi var frestað um óákveðinn tíma. 

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert