„Við treystum heilbrigðiskerfinu okkar fyllilega og sem stendur er engin ástæða til að hætta að spila fótbolta,“ sagði framkvæmdastjóri knattspyrnusambands Hvíta-Rússlands en þar í landi er eina starfandi knattspyrnudeildin í Evrópu.
Um allan heim hefur íþróttakeppnum verið frestað ótímabundið vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á heimsbyggðina en í Hvíta-Rússlandi heldur fótboltinn ótrauður áfram.
„Við vitum að ástandið er slæmt víða í heiminum en ákvörðunin, um hvort fólk mætir á fótboltaleiki, er í höndum stuðningsmanna. Við gerum ýmsar ráðstafanir, eins og að hafa handspritt við innganga og hitamæla þá sem mæta. En fólk verður að ákveða hvort það mætir,“ sagði Sergei Zhardetski í viðtali við Marca.
Íslendingurinn Willum Þór Willumsson spilar í deildinni og mun lið hans, BATE Borisov, mæta Ruh Brest klukkan 14:30 í dag.
Forseti landsins, Alexander Lukashenko, hefur gert lítið úr alvarleika veirunnar. „Það er betra að deyja standandi en að lifa á hnjánum,“ sagði hann við sjónvarpsmenn eftir að hafa spilað íshokkí á dögunum og faðmað aðra leikmenn í kringum sig. Hann hefur líka hvatt þegna sína til að drekka vodka og þvo hendur sínar með spíranum.