Gamall samherji Eiðs í írska teymið

Damien Duff lék m.a. með Fulham.
Damien Duff lék m.a. með Fulham. EDDIE KEOGH

Stephen Kenny tók við írska karlalandsliðinu í fótbolta í gær og nú er búið að ráða aðstoðarmenn hans. Damien Duff og Keith Andrews gengu í írska teymið í dag. 

Duff hefur undanfarið verið í þjálfarateymi Celtic í Skotlandi en hann átti góðan feril sem leikmaður og lék m.a. með Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea og Fulham á sínum tíma. Hann lék 100 landsleiki fyrir Íra. 

Andrews lék m.a. með Wolves, Blackburn og Bolton á sínum ferli og lék 35 landsleiki. Hann hefur að undanförnu verið sérfræðingur á Sky Sports-sjónvarpsstöðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert