Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Ronaldinho og bróðir hans hafa verið látnir lausir úr fangelsi í Paragvæ. Voru þeir handteknir með ólögleg vegabréf á leiðinni frá Brasilíu til Paragvæ í síðasta mánuði.
Borguðu þeir hvor sína 800.000 dollarana, 114 milljónir króna, í tryggingu, gegn því að verða látnir lausir úr fangaklefa. Úr fangaklefanum lá leiðin beint inn á lúxushótel í Asúnsjón, höfuðborg Paragvæ.
Fjölmiðlar hópuðust fyrir utan hótelið til sjá stórstjörnuna fyrrverandi, en hann veitti engin viðtöl. Hann og bróðir hans gætu fengið allt að fimm ára dóm í heimalandinu, en hann verður væntanlega í stofufangelsi næstu vikurnar.
Ronaldinho er sagður skulda jafnvirði um 305 milljóna króna í umhverfisgjöld eftir að hafa látið byggja bryggju með ólöglegum hætti við hús sitt sem liggur að vatni í Porto Alegre. Aðrar skuldir Ronaldinhos nema 250 milljónum króna.