Völdu tíu bestu markverði heims

Jan Oblak.
Jan Oblak. AFP

Knattspyrnutímaritið Fourfourtwo valdi í dag tíu bestu markverði heims. Markverðir á Spáni og Englandi eru áberandi á listanum en þrír af fjórum efstu markvörðunum spila á Spáni. 

Hér að neðan má sjá listann og umsögn blaðamanna Fourfourtwo um markverðina tíu. 

10. David de Gea (Manchester United)

David de Gea er tíundi besti markvörður heims að mati …
David de Gea er tíundi besti markvörður heims að mati Fourfourtwo. AFP

Spánverjinn hefði verið efstur á listanum ef hann væri enn að spila eins og hann gerði tímabilið 2017/18. Síðan þá hefur hann gert fjölmörg mistök, en á sama tíma getur hann varið bolta sem enginn annar markvörður á möguleika í. 

9. Ederson (Manchester City)

Ederson er með löppunum.
Ederson er með löppunum. AFP

Í dag er ætlast til að markvörður sé góður spilari og fáir eru eins góðir og Ederson. Hann er snöggur að koma boltanum á annaðhvort Fernandinho eða gefa 50 metra sendingar á Raheem Sterling. Hann getur hins vegar bætt sig í markvörslunni sjálfri. 

8. Manuel Neuer (Bayern München)

Manuel Neuer er aðalmarkvörður þýska landsliðsins.
Manuel Neuer er aðalmarkvörður þýska landsliðsins. AFP

Það er ekki langt síðan Neuer var besti markvörður heims. Hann var svo góður með boltann í löppunum að Guardiola vildi spila honum á miðjunni. Þá spilaði hann virkilega vel með þýska landsliðinu og var valinn þriðji besti leikmaður heims árið 2014. Síðan þá hefur hann glímt við meiðsli og ekki verið sami leikmaðurinn. 

7. Samir Handanovic (Inter Mílanó)

Samir Handanovic er sá eini sem leikur á Ítalíu á …
Samir Handanovic er sá eini sem leikur á Ítalíu á listanum. AFP

Það fer ekki mikið fyrir honum en síðan hann fór til Inter frá Udinese fyrir átta árum hefur hann verið einn besti markvörðurinn í Evrópu. Hann fær sjaldan það hrós sem hann á skilið en hann er orðinn goðsögn í Mílanó. Hann er gamaldags markvörður sem ver vel. 

6. Peter Gulasci (Leipzig)

Peter Gulasci er búinn að vera magnaður hjá Leipzig.
Peter Gulasci er búinn að vera magnaður hjá Leipzig. AFP

Kom til Leipzig frá Salzburg fyrir fimm árum og er ein bestu kaup í sögu Leipzig. Hann hefur verið besti markvörðurinn í þýsku deildinni að undanförnu og stærsta ástæða þess að Leipzig fær fá mörk á sig. Skipulagður og góður markvörður. 

5. Keylor Navas (PSG)

Keylor Navas hefur slegið í gegn hjá PSG.
Keylor Navas hefur slegið í gegn hjá PSG. AFP

Þrátt fyrir góða frammistöðu hjá Real Madríd komst var hann aldrei vinsæll á meðal stuðningsmanna liðsins, sem vildu stærra nafn í rammann. Hann fór því ódýrt til PSG þar sem hann hefur slegið í gegn. Hann hefur átján sinnum haldið hreinu á leiktíðinni í frönsku deildinni og fimm sinnum í Meistaradeildinni. 

4. Thibaut Courtois (Real Madríd)

Thibaut Courtois hefur verið góður eftir erfiða byrjun hjá Real …
Thibaut Courtois hefur verið góður eftir erfiða byrjun hjá Real Madríd. AFP

Eftir erfiða byrjun hjá Real Madríd hefur hann blómstrað á þessari leiktíð síðan hann tók við af Navas. Verðugur langtímaarftaki goðsagnarinnar Iker Casillas. Hann hefur aðeins fengið á sig 16 mök í 24 leikjum á leiktíðinni og virðist enn vera að bæta sig. 

3. Marc-Andre ter Stegen (Barcelona)

Marc-Andre ter stegen ætti að vera aðalmarkvörður Þýskalands.
Marc-Andre ter stegen ætti að vera aðalmarkvörður Þýskalands. AFP

Það virðast æ fleiri á því að ter Stegen eigi að vera aðalmarkvörður þýska landsliðsins í stað Neuer. Ter Stegen er nútímamarkvörður sem líður vel þegar hann er með boltann í löppunum og á ekki í erfiðleikum með að vinna samherja. Byrjaði ekki vel hjá Barcelona en hefur bætt sig fljótt og ætti að verða aðalmarkvörður Þýskalands fyrr en varir. 

2. Alisson (Liverpool)

Alisson á stóran þátt í velgengni Liverpool.
Alisson á stóran þátt í velgengni Liverpool. AFP

Hann og Virgil van Dijk eru stærstu ástæður þess að Liverpool er á þeim stað sem liðið er á í dag. Liverpool saknaði hans mikið í byrjun tímabils. Vörn liðsins var langt frá eins örugg með Adrian í markinu. Þegar Alisson kom aftur í markið breyttist liðið til hins betra. Hann skipuleggur vörnina gríðarlega vel, er góður á löppunum, ver vel og er með sjálfstraustið í botni. 

1. Jan Olbak (Atlético Madríd)

Jan Oblak er sá besti í heimi.
Jan Oblak er sá besti í heimi. AFP

Sýndi hversu góður hann er þegar Atlético sló Liverpool úr leik í Meistaradeildinni í síðasta mánuði. Varði hvað eftir annað glæsilega. Hann hefur 100 sinnum haldið hreinu í 178 leikjum og hefur verið valinn besti markvörður spænsku deildarinnar síðustu fjögur ár. Oblak er besti markvörður heims í dag og verður það væntanlega næstu árin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert