Messi varð stressaður nálægt Henry

Lionel Messi er mannlegur.
Lionel Messi er mannlegur. AFP

Argentínska stórstjarnan Lionel Messi leit mikið upp til Thierry Henry þegar Frakkinn kom til Barcelona frá Arsenal árið 2007. Messi var þá tvítugur á meðan Henry var einn besti leikmaður heims. 

Messi viðurkennir við L'Equipe að hann hafi átt erfitt með að horfa á Henry fyrst um sinn. „Þegar hann kom inn í búningsklefann þorði ég ekki að horfa í áttina að honum. Ég vissi hvað hann hafði gert á Englandi og allt í einu vorum við orðnir samherjar,“ sagði Messi. 

Argentínumaðurinn var afar hrifinn af því að spila með franska sóknarmanninum. „Ég ber mikla virðingu fyrir honum. Hann átti svo auðvelt með að sækja á varnarmenn og klára færi. Hann er með náttúrulega hæfileika,“ sagði Lionel Messi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert