Meistararnir með aðra hönd á bikarnum

Joshua Kimmich fagnar sigurmarki sínu gegn Borussia Dortmund ásamt liðsfélögum …
Joshua Kimmich fagnar sigurmarki sínu gegn Borussia Dortmund ásamt liðsfélögum sínum. AFP

Joshua Kimmich reyndist hetja Bayern München þegar liðið vann afar mikilvægan sigur gegn Borussia Dortmund í toppslag þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu á Signal Iduna Park í Dortmund í dag. Leiknum lauk með 1:0-sigri Bayern München en það var Joshua Kimmich sem skoraði sigurmark leiksins á 43. mínútu.

Bæjarar voru sterkari aðilinn í leiknum þótt Dortmund-menn hafi byrjað betur og fengið ágætisfæri til þess að byrja með. Bæjarar voru hins vegar sterkari aðilinn í seinni hálfleik og stjórnuðu leiknum allan tímann. Bayern München fer með sigrinum upp í 64 stig og hefur nú sjö stiga forskot á Borussia Dortmund þegar sex umferðir eru eftir af tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert